Fríar pylsur
20. október 2008 klukkan 20:26
Jahá það voru sko pylsur í vísó síðasta föstudag. Það var nú eins gott að ég ákvað að fara. Svo var meira að segja ekki bara bjór heldur líka smirnoff ice, það er nú aldeilis látið við okkur í kreppunni. Það er að sjálfsögðu ástæða fyrir þessu dekri, fyrirtækið vill fá eitthvað frá okkur (sem mér finnst ekkert óeðlilegt). Eftir vísó fórum við niður í bæ og ætluðum á karókí bar. Í heimsku okkar gerðum við að sjálfsögðu ekki ráð fyrir því að það væri ekki búið að opna fyrir söng svo snemma svo við fórum bara í singing bee "partý" í staðinn. Þá voru raddböndin hituð upp fyrir það sem koma skildi. Við mættum stundvíslega klukkan 22 í karókíið en þá voru keppinautar kvöldsins, team Tæland og team Pólland, þegar búin að koma sér fyrir. Hófst þá æði spennandi keppni milli okkar 3ja, þar sem markmiðið var frekar að syngja sem flest lög en að syngja endilega vel (við sungum samt klárlega betur). Við sungum þar til við urðum hásar, bæði okkar lög og tókum einnig undir pólsku lögin, Pólverjunum til mikillar gleði. Kvöldið endaði svo, eins og ungum dömum sæmir, um miðnætti á Subway. Þar kom útsjónarsemi mín sér vel, því ég hafði gripið með mér pepsíflösku úr vísó og slapp því við að kaupa mér kók með bátnum mínum. Iiiit´s kreppa.
Anna Sigurđardóttir

