This is my life!

24. febrúar 2008 klukkan 11:46
Eins og alþjóð veit, mun framlag okkar til júróvisjón þetta árið vera This is my life, sem Regína Ósk og Friðrik Ómar syngja. Ég hélt með þeim. Ég held nefnilega einhvern veginn ekki að við hefðum komist áfram í aðalkeppnina með tönuð vöðvatröll og laglausa stelpu, jafnvel þó hún sé mjó. Jiminn hvað byrjunaratriðið í Laugardagslögunum var flott! Fyrir júróvisjón/Siggu Beinteins aðdáanda eins og mig var þetta draumi líkast haha.
Spaugstofan var líka megafyndin í gær, allskonar "flashbacks" úr gömlum þáttum (og líka áramótaskaupum, vei!) þar sem verið var að gera grín að júróvisjón. Það mætti halda að ég hefði búið til dagskrána, júró, Sigga og skaup, gerist varla betra.
Eftir keppnina fór ég til Fjólu að spila Party & Co. Ég hef aldrei spilað þetta áður (þess vegna tapaði ég) en þetta var samt mjög skemmtilegt. Ég er til í rematch hvenær sem er við hvern sem er.
Anna Sigurđardóttir
OMG, ég hugsaði einmitt til þín (Önnulebbu) þegar ég horfði á Laugardagslögin áðan. Ég verð að viðurkenna að ég grét pínu yfir byrjunaratriðinu, heimþrá á sunnudegi. Ætla að horfa á Spaugstofuna núna.

p.s. ég er til í partý og co anytime
24. febrúar 2008 klukkan 18:58
Ester skrifar ...
Lúði, hefur aldrei spilað partyog co. Hefðir nú samt unnið mig þó ég væri með gráðu í party og co. EN já júró rokkaði feitt í ár... Ég og mamma öskruðum, grenjuðum og hlóum til skiptis yfir þessu öllu saman, talandi um tilfiningaflóð sko.. Stefán gafst svo upp þegar við tókum ekki annað í mál en að horfa á myndina með hjartaknúsaranum Hugh Grant og Söndru Bullock, hef ekki sé hann síðan á laugardag (stefán sko). Ætti kannski að fara að auglýsa eftir honum?? nei grííín, hann lét nú sjá sig sama kvöld með hryllingsmynd og karlanammi (trompbita) til þess að endurheimta karlmanninn í sjálfum sér;) p.s kem suður 14.feb
25. febrúar 2008 klukkan 21:09
Telma Björg skrifar ...
 
Ef ykkur vantar aukamann í Partý og có þá er ég tiiihiiil.

Fór annars í Partý og có extreme um daginn og það var bara sjúklegt.

Anna, ég hugsaði til þín um daginn vegna einhvers sem ég sá í sjónvarpinu og minnti mig á það þegar þú meiddir þig aðeins í lófanum á glerbroti... og sagðir hjúkkunni að þú hefðir ekkert verið að drekka neitt. Ætli það skipti máli þegar maður er saumaður? Spyr ég lækninn. Eníveis, ef þú fékkst hiksta þá var ég að hugsa til þín, samt ekkert slæmt:)
26. febrúar 2008 klukkan 15:09
Anna SigurđardóttirViđ plönum party og co party ţegar Tinna kemur til landsins! Hahaha, Telma, ţetta var nú gott djamm og góđ saga ;)
26. febrúar 2008 klukkan 19:35
Það besta við djamið held ég samt að hafi verið pítsurnar. HAHAHA!
26. febrúar 2008 klukkan 21:02
Ester skrifar ...
 
eða daman sem kom óboðin og ÁT af okkur 3 ef ekki 4 sneiðar... þekktum við þessa gellu eitthvað?? var hún ekki bara gráðug?? hahaha... helv.tuss... nei ég meina ... ;)kv.Ester
27. febrúar 2008 klukkan 09:08
Fiffi skrifar ...
Skildi ég það rétt að þú hafir tapað, en samt skemmt þér ágætlega.. Er ekki eitthvað á mis þarna? Eða er ég kannski að hugsa um Tinnu...
27. febrúar 2008 klukkan 13:26
Anna Sigurđardóttirhahah pizzurnar já gvuđ djöfulsins bóbóar vorum (erum) viđ!! já ţađ var ástćđan fyrir ađ sumir vildu halda í höndina á mér á međan veriđ var ađ sauma sáriđ, hún VISSI af pizzunum sem biđu okkar heima. Já, Fiffi, ég verđ sko ekki jafn brjáluđ ef ég tapa í einhverju sem ég er ađ prófa í fyrsta skipti. Passiđ ykkur samt á mér í party og co partyinu, ţađ er eins gott ađ ég vinni ţá!
28. febrúar 2008 klukkan 20:26
Oh, ekki minnast á að tapa. Ég mun aldrei gleyma þegar ég tapaði fyrir Önnu í lúdó einhversstaðar yfir Kyrrahafinu. Ég var svo nálægt því að vinna og svo hrundi allt. Grátlegt.
28. febrúar 2008 klukkan 23:48

Skrifa athugasemd

Prófíll

  • Nafn: Anna Sigurđardóttir

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...