Bara eitt próf og heill kúrs eftir

27. apríl 2008 klukkan 18:35
Já, eftir minna en mánuð verð ég frjáls kona, nei ég meina stelpa. Það verður ljúft að þurfa ekki að taka vinnuna með sér heim, maður er búinn klukkan 4 og þá er maður búinn. Við fengum nokkurra daga frí milli kúrsa og þá ánetjaðist ég aftur Grey´s Anatomy, þrátt fyrir að vera búin að sjá alla þættina. Ég hreinlega get ekki slitið mig frá þeim.

Ég fór í dagsferð til Akureyrar í gær, mjöög skemmtilegt fyrir utan tapið í leiknum. Fékk mér kólesterólsprengju á Greifanum, LDLið mitt  hefur hækkað fjórfalt við þessa máltíð. Heimferðin var sérlega ánægjuleg nema að við/Olla náði sér í feita hraðasekt. Þvílíkur bömmer, en hún vann þó 648 kr í lottóinu.

p.s.
Hvað lætur fólk halda að það sé töff að ganga í þröngum, sinnepsgulum gallabuxum? Eða hvítum magabol? Jiminn..
Anna Sigurđardóttir
Hei, er einmitt að byrja á Greys í fyrsta skiptið núna. Lofar góðu og gaman að geta bara horft og horft.
p.s. ég er að hugsa um að fara í vatnsrennibrautagarð í næstu viku, veit samt ekki hvort það verði gaman án þín... og bráðnaða karlsins.
27. apríl 2008 klukkan 19:36
Anna besta skrifar ...
bwahahahaa bráðnaði karlinn, ég var búin að gleyma honum. En þú veist að vatnsrennibrautagarðar og rússíbanar jaðra við framhjáhald þannig að þú skalt hugsa þig vel um áður en þú ferð niður þann veg.
27. apríl 2008 klukkan 22:26
íris skrifar ...
 
Var það nokkuð Blönduóslöggan sem var að gera góða hluti? Þar sem við þurfum að fara í gegnum umdæmi hennar til að komast í sumarbústaðinn þá höfum við lært að frá og með miðri Holtavörðuheiði og í sumarbústaðinn er ekki æskilegt að fara yfir 95 hehe
28. apríl 2008 klukkan 09:21
Olla skrifar ...
Það var nú reyndar bara 640 kr.
Munar öllu um þessar 8 kr :)
28. apríl 2008 klukkan 13:29
Anna besta skrifar ...
Nei, við brunuðum fram úr Blönduóslöggunni og töldum okkur því frekar safe.. En það var andsk. Akraneslöggurnar, sem eru víst frekar duglegar líka. Olla, mér finnst ég eiginlega skulda þér 8 kr.
28. apríl 2008 klukkan 15:02
Ester skrifar ...
bíddu hvað er í gangi?? varstu ekki sátt við gulusinneps buxurnar sem ég sendi þér?? ég var alltaf í þeim, uppáhaldsbuxurnar mínar og gaf þér þær BARA útafþví að ég passaði ekki lengur í þær:/ vanþakklætið alltaf endalaust í sumum.. p.s ég lét mömmu þrengja þær sérstaklega mikið að neðan svona því mér fannst það þinn Stíll!! iss... ég er hætt við Anus nafnið, var alveg að verða búin að sannfæra kallinn.
28. apríl 2008 klukkan 15:04
Kristó skrifar ...
Var síðasti kúrs nokkuð metabólismi lípíða? :-)

Annars ætti ég að kannast við svona gegnumsýringu. Var að lesa um lífefnafræði lifrarinnar um daginn og hef ekki dirfst að smakka áfengi síðan. Dauðhræddur um hlutfallið milli NAD+/NADH, redox stöðu glutathione, K-vítamíns, acetaldehyde stöðuna í lifrarfrumunum og þar af leiðandi losun á VLDL, hvort ITO frumurnar mínar séu nokkuð að breytast í fibroblasta...og hvort ég sé nokkuð að stoppa Krebs hringinn minn.

Sjæse, erfitt líf. Farinn að gera biopsíu á eigin lifur til að athuga með free radicals...
02. maí 2008 klukkan 06:58
Anna besta skrifar ...
úff, gott að vera búin með lífefnafræðina!
04. maí 2008 klukkan 10:05
Ester skrifar ...
Anna, hefur einhver sagt þer að þið systkinin eruð pínu nördar... dáldill Elli frændi í ykkur eða hvað... híhí...
05. maí 2008 klukkan 22:55
Ester skrifar ...
eruði í fýlu eftir síðasta komment eða???? ég vil fréttir...
05. júní 2008 klukkan 17:40
Arna Ósk skrifar ...
 
jæja!!! þetta kallar maður leti Anna Sigurðardóttir!
19. júní 2008 klukkan 14:48

Skrifa athugasemd

Prófíll

  • Nafn: Anna Sigurđardóttir

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...