Já, ţetta ER leti

21. júní 2008 klukkan 23:51
Þegar ég er ekki að vinna í tölvunni allan daginn, eins og þegar ég er í skólanum, þá nenni ég hreinlega varla að kveikja á henni. Það þýðir að ég blogga hvorki né svara póstinum mínum. Ég ákvað þó að slá til og eyða nokkrum mínútum af þessu fallega sumarsólstöðukvöldi í að blogga.
Ég fór í vax á föstudaginn. Það er svosem ekki frásögu færandi nema að þegar ég gekk (ég geng reyndar ekki heldur strunsa) í átt að dyrunum var ég önnum kafin við að leita að einhverju í hliðartöskunni sem hékk á hægri hliðinni. Það vildi svo illa til að akkúrat á þessu augnabliki þurfti stór steypustigapallur að skaga út á gangstéttina vinstra megin við mig. Þetta varð til þess að ég dúndraði höfðinu og hálsinum í steypuna og sá stjörnur í millisekúndu. Vandræðaleeegt! Fólki finnast áverkarnir líta út annað hvort eins og köttur (sumir segja vistmenn elliheimilis) hafi ráðist á mig en aðrir halda að þetta sé einfaldlega afrakstur elskulegs kærasta. Mér líst betur á fyrri tillöguna en á endanum þarf ég alltaf að segja alvöru söguna.
Þetta var heldur betur góð vaxferð því þegar vaxkonan mín var að bíða eftir að vaxið þornaði ákvað hún að lauma út einni hljóð- og lyktarlausri sprengju. Það vildi svo illa til að hún misskildi líkama sinn og þessi hrikalegi fnykur braust fram. Semi vandró en við þögðum báðar og vonuðum að vaxið færi nú að þorna.

Fyrsti heimaleikurinn okkar er á morgun, svolítið seint að hvetja fólk til að mæta een kannski fólk skoði þetta í þynnku sinni og ákveði að skella sér út í sólina að hvetja Önnu sína (jú og liðið hennar).

P.s. Ég fer til Frakklands ekkámorgunnheldurhinn!!
Anna Sigurđardóttir
Hahaha, góð færsla. Sumarsólstöður voru samt ekki í gær. Ég brjálaðist þegar ég sá moggann: Lengsti dagur ársins liðinn! Takk fyrir að tilkynna þetta fyrirfram. Heimska hlaupárið lét mig missa af uppáhalds deginum mínum.
22. júní 2008 klukkan 14:22
Ester skrifar ...
Vandræðaleeeeegt.... sko með prumpið, ekki höggið... haha...
29. júní 2008 klukkan 19:23
Ingvar skrifar ...
 
Var þetta Brazilian vax? Hvernig væri nú ef Vagns familían í Bolungarvík opnaði vax-stofu, gætu meira að segja ennþá notað nafnið "Vaxon"
30. júní 2008 klukkan 23:14
Arna Ósk skrifar ...
hæ eskan!!! enn í Frakklandi???...farðu nú að kíkja einhverntíman á msn
03. júlí 2008 klukkan 10:49
ég ćtla ađ klobba ţig... skrifar ...
 
meira blogg.. koma svoooo
21. júlí 2008 klukkan 11:35
Arna Ósk skrifar ...
nú hef ég í alvurunni ákveðið að taka þig úr bloggrúntinum mínum vinkona...skil svo sem að u getir ekki bloggað þar sem u ert enn í France ;) haha
11. september 2008 klukkan 14:35

Skrifa athugasemd

Prófíll

  • Nafn: Anna Sigurđardóttir

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...