Sjiiitt

10. júní 2007 klukkan 22:46
6 tímar í upphaf ferðalagsins til Ítalíu!! Draumur að rætast síðan Arna fór til Ítalíu árið nítjosjö eða eitthvað. Þetta verður örugglega geðveikt, sól, fótbolti og vatnsrennibrautagarður.. Gerist varla betra. Ég er búin að lofa mér í allar rennibrautirnar, meira segja stólpípurennibrautina (passa bara að loka vel).
Góða ferð Þróttaragellur!

P.s. Ef ég kem ekki brún heim vil ég hér með banna frasann: "Bíddu varst þú ekki í útlöndum? Þú ert ekkert brún". Með fyrirfram þökk, Anna.
Anna Sigurđardóttir

Haust-Vetur-Vor-aftur haust??

05. júní 2007 klukkan 17:04
Sökum... leti hef ég ekki bloggað í háa herrans tíð. Á sumrin má maður vera latur. Ógeðisveður síðustu daga hefur látið mig efast um heilann í mér, er í alvöru JÚNÍ? Ég man ekki eftir svona haustveðri að sumri til, vona samt eiginlega að það haldi áfram að vera svona viðbjóðslegt á meðan ég nýt lífsins í hita og sól á Ítalíu. Einhvern veginn nýt ég veðurblíðunnar betur ef ég veit að veðrið er vont hérna heima. Þá er ég allavega ekki að missa af neinu.
Við gæsuðum Hönnu frænku á laugardaginn, heppnaðist mjög vel. Létum hana í playboykanínubúning og svo fékk hún gulrót(arvíbrador). Hún sór að það væri gulrótarbragð af honum, ég ákvað að trúa henni bara og sleppa því að smakka. Eftir nokkurra klukkutíma fíflagang fórum við allar í Laugar SPA. Það var æði. Við vorum samt eiginlega of æstar í að skoða allar gufurnar og sturturnar til að geta slakað almennilega á. Fengum m.a. hláturskast inni í slökunarherbergi. Það var vægast sagt illa liðið af einhverjum snobbkerlingum. Skiljanlega. Svo fórum við á Ruby og átum í marga klukkutíma þar til ég pældi alvarlega í að fara að gubba af ofáti. Svona er maður ógeðslegur. Súkkaðikakan var samt geeðveik.
Annars eru flestir dagar svipaðir, æfingar og vinna og smá tími til að hitta fólk utan þess. Kepptum annan leik Íslandsmótsins í gær og unnum 3-1 og erum núna í fyrsta sæti! Getum aldeilis farið sáttar til Ítalíu eftir 6 DAGA!!

Minni á klósettpappírsölu mína, klassapappír, vel skeinanlegur -jafnvel fyrir viðkvæma rassa. Aðeins 2000kr fyrir 48 rúllur. Viljiðið pæla, ef þið kaupið þurfiði ekki að kaupa pappír næstu mánuðina!!
Anna Sigurđardóttir

Loksins búin!

21. maí 2007 klukkan 13:10
Síðasta prófið er búið!! Ég er svo fegin, ef ég næ öllu er ég búin með heilt ár. Ótrúlega fljótt að líða. Þó ég hafi bara lært einn heilan dag fyrir prófið fékk ég samt smá prófaljótu. Ótrúlegt hvernig hún læðist að manni þó maður rétt kíki í bækurnar. Lúmsk er hún. Þetta mun allt verða betra eftir aðeins 3 vikur því þá tekur ÍTALÍA við mér og Þróttarapæjunum. Íslandsmótið nú þegar byrjað og við rúlluðum upp fyrsta leiknum 13-0. Blendnar tilfinningar að fara svona illa með gömlu félagana, en svona er þetta.
Reunion á Ísafirði næstu helgi og svo náttúrulega Jonni að fermast, hlakka til að fara "heim" og hlakka líka til að  borða mömmumat :))
Anna Sigurđardóttir

Sumariđ er komiđ!

13. maí 2007 klukkan 23:45
Margt hefur gerst síðan síðasta færsla var skrifuð. Líf mitt hefur breyst til hins betra. Ég er orðin 22 ára sem þýðir að ég er enn betri og þroskaðri en ég var þar til 9. maí sl. (er það ekki annars svoleiðis, því eldri því betri?? Ég vil allavega trúa því).
Heil vika af verklegri samskiptafræði að baki, Landakot og Reykjalundur skoðuð. Áhugavert en sumt þó meira en annað. Besta var samt að þegar ég keypti mér nammi í sjoppunni á Reykjalundi fann ég andlitskremið sem ég notaði alltaf (þangað til það var hætt að framleiða það fyrir nokkru). Ein dolla eftir! Tinna meira að segja búin að þræða allar búðir í framleiðslulandi kremsins en gat ekki einu sinni fundið það þar. Það þarf sumsé lítið til að gleðja mig.

Vísó í Actavis á föstudaginn og þetta er klárlega besta vísindaferð ársins. Nóg að éta og drekka og meira að segja eftirréttur. Einnig vorum við leyst út með gjöfum.  Enginn áróður í gangi eða neitt, því vil ég allavega ekki trúa. Svo var afmælispartý sem heppnaðist bara mjög vel að öllu leyti nema því að 4 massaðar löggur komu og skráðu nafn mitt og kt. niður. Iss, að fólk skuli ekki getað komið og sagt mér að lækka áður en það hringir í NEYÐARlínuna (þvílík neyð). Á meðan hefðu þessar löggur kannski getað verið að koma í veg fyrir slagsmál eða ölvunarakstur, þeim fannst meira að segja sjálfum þetta vera tilgangslaus heimsókn. En í kjölfarið af góðum veitingum actavis fylgdi gríðarlegur höfuðverkur á laugardaginn sem entist þar til ég fór að telja atkvæði seinni part dags. Það var gaman. Lítið að gera, frítt að éta og vel borgað. Allt saman mjöög gott.

Jæja þá er skólinn búinn sem þýðir náttúrulega ekki frí því námsmenn fá aldrei frí. Vinnan byrjar strax á morgun, svosem ágætt.
Takk í bili og ég biðst afsökunar á ógeðslega langri færslu því ég nenni aldrei að lesa langar bloggfærslur.
Anna Sigurđardóttir

Önnuţingi klárlega slitiđ

08. maí 2007 klukkan 00:24
...og það fyrir þónokkrum dögum. Takk Anna fyrir að tilkynna það.

Nú er ég sumsé orðin alvöru manneskja aftur, ekki bara prófaógeðið sem ég var fyrir helgi. Líf mitt er orðið tiltölulega áhyggjulaust á ný, yndisleg tilfinning. Prófin gengu bara lala, ætti samt að ná. Nú er bara samskiptafræðiprófið eftir og það 21.maí.. næægur tími til að læra undir það. Þó mér hafi nú gengið ágætlega í heildina get ég ekki sagt að þetta hafi gengið eins og í sögu. Ég mætti nefnilega í eðlisfræðiprófið án reiknivélar (aukahjartslátturnúmereitt)!! Í örvæntingu spurði ég yfirsetukellinguna hvort hún gæti lánað mér, en það var sko ekki að ræða það hjá minni. Ég fékk leyfi til að fá lánaða vél hjá Sólveigu (sem sat fyrir framan mig) en AÐEINS ef ég talaði við yfirsetuklellinguna fyrst og hún myndi sjá um að taka við henni frá Sólveigu og rétta mér hana. Allaveganna, ég geymdi dæmin sem ég þurfti reiknivélina í þar til í lokin og fékk hana svo lánaða. Aukahjartslátturnúmertvö þennan dag kom þegar ég sá að reiknivélin var grafísk. Ég kann ekki og mun sennilega aldrei kunna á svoleiðis apparat en ákvað nú að reyna að reikna dæmin. Allt kom fyrir ekki þannig að ég endaði á að slumpa á svarið!! Kennarinn heldur örugglega að ég sé fáviti þegar hann sér útreikningana sem ég gerði. Sem betur fer skrifar maður ekki nafnið sitt heldur bara nemendanúmer.

Mamma og pabbi komu frá Ungverjalandi í dag, fékk vín, bol og fleira. Alltaf gaman að fá dót frá útlöndum.
Gamalt fólk allan morgundaginn og svo stígvélakaup með mömmu..vúbbí!!
Anna Sigurđardóttir

Önnuţing

25. apríl 2007 klukkan 19:02
Hið hér eftir árlega Önnuþing hófst í gær með pompi og prakt. Fyrsti fundurinn var settur klukkan 10:00 að Álftamýri 26 í gær og annar í dag klukkan 6:00 á sama stað. Þá var haldið í hina alræmdu Hreyfingu, en þar brenna Önnurnar spiki til að geta étið meira. Fundurinn hélt svo áfram í Hálsaselinu, þar sem Önnulyktin var orðin yfirgnæfandi í Álftamýrinni (of mikið af góðu getur skaðað).
Það sem einkennir fundina er mikið át, hlátur og örlítil skipting á visku í frumulíffræði.
Matseðill fundanna í gær og í dag:
  • 4 L af kóki (að sjálfsögðu ódæet)
  • 1 kíló af lakkrís
  • Doritos poki
  • 24 rís
  • Salsa sósa
  • Osta sósa
  • Rjómaostur
  • Ostur
  • Extra þykkur búrger með piparsósu og kokteilsósu
  • Brauð og heil túnfisksalatdolla með miklu majó
  • Kjúlli (ýmsar eldunaraðferðir)
  • Samloka með peppó, rjómaosti, miklum osti og salsa
Eins og þið sjáið er matseðillinn ekki af verri endanum og ekki mun hann versna á næstu dögum því Önnuþingið mun standa yfir í viku í viðbót. Áhugasamir sem telja sig geta lagt eitthvað að mörkum á þinginu eru beðnir um að hafa samband við Önnu eða Önnu eða Írisi Önnu.

Frekari skýrsla af fundum mun koma að þeim loknum.

Takk fyrir.
Anna Sigurđardóttir

Ţví ég er......

22. apríl 2007 klukkan 19:51
OMG. Ég ekki bara sá Siggu Beinteins í dag heldur talaði líka við hana. Jiminn, ef ég væri enn 10 ára þá væri ég enn hoppandi um af gleði. Þar sem ég er 21 árs hætti ég að hoppa um klukkutíma eftir. Hún er eiginlega Solla Stirða minnar kynslóðar (eða allavega okkar sem héldu með Stjórninni), nema við vildum kannski ekki verða eins og hún að alveg ÖLLU leyti ;)

 

 



Anna Sigurđardóttir

Próf nálgast.. AFTUR.

16. apríl 2007 klukkan 18:52
Alltaf gaman að vinna leiki, það er jú ástæðan fyrir öllu hard worki vetursins. Hér er skemmtileg frétt fyrir áhugasama.

Annars eru aðeins fáeinar vikur í próf og nú þarf ég aldeilis að fara að spýta í lófana ef ég ætla að ná, sem ég að sjálfsögðu ætla mér. Lífið verður semsagt yndislegt eftir 5.maí, bara sól, sumar, bolti og verklegt nám til maíloka. Ég er búin að ákveða að veðrið verði ógeðslega gott í allt sumar og það byrjar strax að loknum prófum. Ég vona að enginn andmæli því.


Anna Sigurđardóttir

Myndir

11. apríl 2007 klukkan 19:44
Er búin að bæta við í myndaalbúmið á þessari síðu. Þetta er gert að beiðni Esterar, sem var btw. í 3.sæti í fitness um helgina. Frábær árangur! Vúbbí!!
Anna Sigurđardóttir

UNNUM LĆKNALEIKANA

05. apríl 2007 klukkan 20:05
Hið ótrúlega (eða ekki) hefur gerst, Hugh Hefner unnu læknaleikana 2007. Liðið samanstóð af mér, Önnu og Agnesi og eins og nafnið gefur til kynna vorum við playboy kanínur (samt ekki í sundbolum). Þetta var svakalega skemmtilegt og spennandi og var þetta sætur sigur þar sem sigurvegarar frá upphafi töpuðu fyrir okkur. Þeir voru ekki sáttir við að tapa fyrir fyrsta árs stelpum. Vinningarnir voru ekkert smá veglegir, t.d. út að borða á uppáhaldsveitingastaðinn minn, Austur-Indíafélagið, frítt í paintball, bíó, leikhús og monningar.
Nú ætla ég að njóta páskanna í faðmi fjölskyldunnar í sveitasælunni. Þetta verður væntanlega góð helgi, margt að gera eins og djamma, fara á Aldrei fór ég suður og svo skelli ég mér e.t.v. á bretti.
Anna Sigurđardóttir

Prófíll

  • Nafn: Anna Sigurđardóttir

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...